Tjarnabraut 8B, 260 Njarðvík
30.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
90 m2
30.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2006
Brunabótamat
24.500.000
Fasteignamat
19.000.000

ALLT FASTEIGNIR Fasteignasala Suðurnesja – SÍMI 560-5515 kynnir í einkasölu fallega og bjarta 3.herbergja íbúð á jarðhæð við Tjarnabraut 8, Reykjanesbæ. Íbúðin er í heild 90 fm. Afgirt verönd er á baklóð sem og sameiginleg stór lóð með rólum, sandkassa og sameiginlegu trampólíni. Barnvænt hverfi. Frábær staðsetning í nálægð við skóla og leikskóla. Upplýsingar gefur Elínborg í síma 823-1334 [email protected]

Nánari lýsing:
Í forstofu íbúðarinnar er eikar parket á gólfum og forstofuskápur úr eik. Lítið þvottarhús er inn af forstofunni. Tvö rúmgóð svefnherbergi er í íbúðinni og eru þau bæði með skápum úr eik. Miðrými íbúðarinnar er opið, bjart og skemmtilegt og er eldhúsið opið ásamt borðstofu, og stofu. Gengið er út á afgirta verönd úr stofunni. Í miðrými íbúðarinnar er einning geymsla. Baðhergbergi er stílhreint með ljósar flísar í hólf og gólf, baðkari og upphengdu salerni. Stigagangur er snyrtilegur og er rúmgóð hjólageymsla til staðar. Stór sameiginleg lóð er aftan við húsið og fylgir stigaganginum aðgangur að sandkassa, rólum og trampólíni. 
Eldhús: Eldhúsinnrétting úr eik.
Stofa/Borðstofa: Björt rúmgóð stofa með eikarparketi.
Herbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með eikarparketi á gólfum og skápum úr eik.
Baðherbergi: Ljósar flísar bæði á gólfi og á veggjum, Innirétting úr eik, upphengt salerni, baðkar og handklæðaofn.
Gólfefni: Eikar parket er á allri íbúðinni nema flísalagt á baðherbergi.
Þvottahús: Lítið þvottahús er inn af íbúðinni, með dúkalögðu gólfi.
Geymsla: Geymsla er inn af íbúðinni með eikarparketi.
Verönd:  Afgirt verönd er á baklóð sem hægt er að ganga út á frá stofu. 
Garður: Sameiginlegur stór garður með sandkassa,rólum,trampólíni og bekkjum.
Stutt er í leikskóla og grunnskóla
Niðurlag: Hugguleg, björt og vel skipulögð eign á góðum stað í Innri-Njarðvík.
Nánari upplýsingar veitir Elínborg gsm 823-1334 [email protected] og Gunnar Ólafsson lögg. fasteignasali [email protected]
Vantar eignir á skrá, persónuleg þjónusta. Við sýnum allar eignir.  Þú finnur okkur líka á facebook
https://www.facebook.com/fasteignasolur/
ALLT FASTEIGNIR – HAFNARFIRÐI – GRINDAVÍK - REYKJANESBÆ (Hafnargötu 91)
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.000  af skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – Fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk.  sbr. kauptilboð. 
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.